Hér og nú Inga Dóra Guðmundsdóttir sýnir í Art-Iceland
Veðrið var frábært á opnuninni eins og myndirnar bera með sér.
Inga Dóra Guðmundsdóttir er fædd í Reykjavík 1977 og hefur fengist við myndlist undanfarin sex ár. Hún lagði stund á listnám við háskólann í Bowling Green, Kentucky, í Bandaríkjunum á árunum 2001 til 2005, undir handleiðslu góðra listamanna á borð við Yvonne Petkus, Jeff Leake og Matt Tullis. Á meðan námi stóð var verk eftir Ingu Dóru valið úr verkum fjölda nemenda til birtingar í bók, þar sem fjallað var um kennara og verkefni þeirra.
Inga Dóra Guðmundsdóttir og Viðar Jónsson. Afi og amma Ingu Dóru komu við á sýningunni og voru stolt af barnabarninu.
Falleg vorbirtan setti svip sinn á sýninguna.
Stemning, spilað úti í blíðskaparveðri. Að námi loknu hélt Inga Dóra heim til Íslands og hefur haldið tvær sýningar hérlendis. Sýningin nú er sú níunda í röðinni og jafnframt þriðja einkasýning hennar. Hún samanstendur af verkum úr seríunum Charcoal Digital og Empathy in Sepia ásamt nýjum, áður óbirtum verkum. Sýningin er því öðrum þræði yfirlitssýning sem sýnir þá þróun sem hefur átt sér stað í listsköpun Ingu Dóru, þar sem manneskjan í borg og náttúru hefur smám saman vikið fyrir íslensku landslagi í stafrænni myndvinnslu. Listakonan segir áhugann á viðfangsefninu hafa kviknað eftir dvöl hennar erlendis, en við heimkomuna hafi augu hennar opnast fyrir fegurð þess og sérstöðu. Svipað og íbúarnir birtist landslagið hrátt og litrænt eins og verkin sýna.
|
|
|