List barna
Síðastliðin fimm á hef ég unnið við myndlist barna á leikskóla. Nemendur mínir eru 1-6 ára. Á þessum aldri eru börnin hugmyndarík og skemmtileg. Umhverfið er lítið farið að móta þau í listsköpuninni. Þau tjá sig frá hjartanu. Mitt hlutverk er að skapa þeim aðstöðu og efnivið til að vinna að myndlist sinni. Síðan mótar hver einstaklingur myndina sína eftir eigin höfði.
Það er alveg frábært hvað þeim tekst að búa til fallegar myndir. Oft á tíðum eru þetta listaverk eins og eftir mikilsmetna listamenn. Það er skemmtilegt að vera með þeim og hlusta á þau. Oft eru þau að búa til sögur og er auðvelt að leiða þau áfram í frálsagnargleðinni sinni. Þetta hef ég lært af þeim. Ég mála myndir sjálf og er smámsaman að læra að mála frá hjartanu. Börnin hafa kennt mér að vera frjáls í myndlistinni og einlæg.
List barna - sólarströndin Börn elska það að móta með höndunum. Það er hollt fyrir þau að handfjatla mjúkt efni og móta eitthvað úr því sem hugurinn girnist. Í þessu verkefni má nota leir af hvaða tegund sem er. |
|
List barna - vetrarmyndir Að vinna með veturinn er óþrjótandi verkefni. Okkur langaði að búa til þrívíðar vetrarmyndir. Til þess að koma þrívíðri mynd fram, þá völdum við þykkt undirlag og pappír sem leggst ekki niður og er lifandi. |
|
List barna - akríl Að mála mynd er ekki eingöngu að fá sér pensil og striga og mála mynd. Það má líka breyta til og sleppa penslunum ! Akríl litir eru sérstaklega þægilegir þegar við viljum láta litina ráða ferðinni. |
|
List barna - vefnaður Þessar myndir sýna myndvefnað, unnið af 4-6 ára börnum. Ég klippti niður hænsnanet, 40 x 50 cm. Síðan klippti ég niður efni í þeim litum sem mér fannst passa. |
|
List barna - blekmyndir Ég geri mér grein fyrir að margir hafa látið börn á leikskólum vinna með blek og vatnsliti. Hér er sú aðferð notuð sem flestir þekkja. |